Everything you need to know about the product and billing.
HVAÐAN KEMUR PRÓTEINIÐ Í UPP*?
UPP* sameinar mysuprótein úr mjólk og kollagenpeptíð úr nautgripum. Tveir próteingjafar. 20 g af próteini. Ein dós.
HVERSU MIKIÐ PRÓTEIN ÞARF ÉG Á DAG?
Góð þumalputtaregla fyrir fólk sem hreyfir sig reglulega er 1,2–2,2 g af próteini á hvert kíló af líkamsþyngd. 75 kg manneskja þarf því um 90–165 g af próteini á dag.
HVAÐ ER DUAL PWR SYSTEM™?
Dual PWR System™ er próteinblandan í UPP*. BLG mysuprótein annars vegar. Kollagenpeptíð hins vegar. Tvær ólíkar amínósýrusamsetningar. Tveir próteingjafar sem vinna saman. Útkoman er 20 g af próteini í léttum og frískandi drykk.
MYSUPRÓTEIN + KOLLAGENPEPTÍÐ – AF HVERJU BÆÐI?
Þú ert meira en bara vöðvar. Blandan hentar ekki bara vöðvum heldur líka liðum og húð. Þess vegna inniheldur UPP* bæði.
HVAÐ ER SVONA SÉRSTAKT VIÐ MYSUPRÓTEINIÐ Í UPP*?
UPP* notar Lacprodan® BLG-100. Það er ný kynslóð mysupróteins sem er sérstaklega ríkt af lífsnauðsynlegum amínósýrum og levsíni. Levsín er ein mikilvægasta amínósýran þegar kemur að uppbyggingu og viðhaldi vöðva. Þess vegna völdum við það.
HVAÐ ERU PEPTÍÐ?
Peptíð eru byggingareiningar úr próteini. Í UPP* eru kollagenpeptíð sem verða til þegar kollagen er brotið niður í smærri einingar – sem auðveldar líkamanum að nýta þau. Í stuttu máli: Peptíð eru auðveldari í upptöku en prótein.
HVAÐ ERU MARGAR HITAEININGAR Í UPP*?
Ein dós inniheldur 80 hitaeiningar. 20 g prótein. Enginn sykur. Engin kolvetni. Allar hitaeiningarnar koma úr próteininu.